It's better to die like a tiger then to live like a pussy....
07.02.2008 23:26:59 / inga

Veikindi

Ojj er búin að vera veik í 3 daga ömurlegt, veit ekkert leiðinlegra en að hanga heima og gera ekki neitt :whut: Er búin að vera með hálsbólgu hita og kvef en var loksins orðin góð í gær hélt á tímabili að ég væri að fara yfirum á því að hanga inni :whut:

En allaveganna farin að hlakka til þorrablótsins og svo Canary eftir sirka mánuð :D svo getur vel verið að ég fari til New York í Apríl með kallinum :haha: Það verða víst allir að fara í Stóra eplið einu sinni á ævinni :!: Kvíði bara svo fyrir fluginu ég HATA flugvélar er svo flughrædd að það hálfa væri nóg en maður lætur sig nú hafa það 8) Jæja henda sér í rúmið og ZZZZ....

Góða nótt 8|


» 1 hafa sagt sína skoðun

29.01.2008 17:36:15 / inga

Allt að gerast.., :-D

Jei bara 42 dagar í Canary vá ég get ekki beðið...  Hlakka svo til að versla eins og vitleysingur og liggja á ströndinni og ná mér í smá brúnku, svo er líka planið að fá sér tattoo eða ekki planið ég ÆTLA að fá mér eitt veit bara ekki hvað??? Einhverjar hugmyndir??:P

 

Vá hvað það er líka gaman að vera byrjuð aftur í skóla ekkert smá skrítið en gaman að vera að GERA eithvað annað en að vinna bara þó að ég hafi nú getað keypt mér íbúð og svonna 19 ára þá er víst nauðsynlegt að vera eithvað menntaður. Veit bara ekki ennþá hvað ég ætla mér að verða soldið sein í þeim málum en hei nóttin er ennþá ung. He he he.  :haha:

 Svo er þorrablótið náttúrulega á næstunni hlakka til þess aðalega skemtiatriðanna þó og vonast bara til að sjá sem flesta þar..8)                                        Buenos noches....

» 4 hafa sagt sína skoðun

22.01.2008 20:51:45 / inga

Söknuður...

Já það er mikill söknuður í gangi hjá mér núna, kallinn út á sjó og vinirnir í bænum og svo sakna ég líka dótsins míns svo sem 42# sjónvarpið og stafrænamyndavélin mín þessu var stolið af einhverjum helvítis fávitum síðastliðið haust. :frown: vantar svo að fara að geta tekið myndir en eins og flestir vinir mínir vita hef ég verið myndasjúk frá því að ég var barn, veit fátt skemtilegra.  En  jæja það er bara að kaupa sér nýtt og hætta að væla.8)

 Annars bara allt gott að frétta er byrjuð í fjarnáminu aftur og í þetta skipti er það félagsfræði og svo er ég að læra spænsku(reini) af sjálfri mér semsagt hljóðbók og svolleiðis dót. Alltaf nóg að gera, en jæja ætla að fara að brasa eithvað að viti og hætta að nöldra

                                                                         ADIOS-


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.01.2008 21:39:13 / inga

Fullorðinsárin

Þár er maður orðin opinberlega fullorðin, fann þó enga rosalega breytingu á afmælisdaginn engin grá hár eða hrukkur þó að familían hafi gert grín að mér ásamt kallinum. :lol:

Haldið var upp á herlegheitin á Amsterdam og mikið drukkið og hlegið, vil ég bara þakka öllum sem að mættu fyrir ógleymanlegan afmælisdag ekkert smá frábært að hitta alla vinina á sama stað eftir nokkra mánaða fjarveru úr  borginni og skemta sér. Svo var líka hlaupið mikið á milli staða maður varð jú að testa nýju skilríkin he he. Greyið dyraverðirnir..... 

Nú er bara grámi hversdagsleikans að drepa mig verð alltaf að hafa eithvað fyrir stafni og hlakka til einhvers, verð bara að bíða fram í mars eftir árlegu Canary ferðinni. Ferðast fullt en finst alltaf best að koma þangað eithvað svo gott loft og góður andi þarna, allir svo afslappaðir og bara njóta lífsins....


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.01.2008 15:21:27 / inga

Síðustu klukkutímarnir......

Niðurtalningin er hafin og aðeins einn dagur eftir í barndóm og eftir hann mun ég ganga tregum skrefum inn í fullorðins árin. Frekar sorglegt finst mér 8|  En það er bara að herða upp hugann og vona að ég sleppi við hrukkur svona fyrst um sinn. Get samt ekki beðið eftir morgundeginum :haha: Haldið verður til Reykjavíkur, gist á hóteli yfir helgina skemtistaður leigður í nokkrar klukkustundir, tengdó heimsótt og verslað og spreðað. Fullkomin uppskrift að fullkominni helgi, á það til að breytast í ALGJÖRT gerpi í kringum afmælið mitt verð soldið svonna ég um mig frá mér til mín en það finst  mér samt allt í lagi þar sem að ég á stórafmæli, Hætt að nöldra í bili og ætla að fara að njóta síðustu klukkutímanna sem að ég á eftir í barndóm :|

» 0 hafa sagt sína skoðun

05.01.2008 13:26:18 / inga

Nýtt ár, nýtt líf

Nýtt ár nýtt líf, það held ég að sé málið. 8)'Eg hef verið mikill sjúklingur í gegnum tíðina, það er að segja líkamlega veik eftir endalaus bílslys(aðeins ollið einu) og þannig óhöpp.Er orðin drulluþreytt á að vera aumingi og geta ekki lyft 2ltr. kókkyppu. Er kjellan ekki bara byrjuð á fullu í ræktinni hlaupa og lyfta svo að hún verði nú stór og sterk á nýju ári:D, og ekki nóg með það heldur fær mataræðið að finna fyrir því líka og hef ég sagt gosi og sælgæti stríð á hendur, Súkkulaði skipt út fyrir gulrætur og bláber  og svo verður sagt skilið við nikotín púkann:S en ekki fyrr en í mars, já nei takk ætla að svæla á Canary eins og ég get fyrir rétt 150kr pakkann og njóta þess. :haha: Vil ég bara óska öllum gleðilegs nýs árs og vana að þið hafið það sem allra best.

» 1 hafa sagt sína skoðun

29.12.2007 19:25:59 / inga

Hlakka til

Hlakka svo til svo margs, Já lífið er orðið æðislegt eftir að ég flutti heim 8) styttist alltaf í 20 ára afmælið aðeins 13 dagar. Ætla mér að leigja einhvern stað og kaupa kút og gaman, svo er það Canary eins og vanalega í mars :D til að hafa þetta nákvæmara er það 60 dögum eftir afmælið mitt. Alltaf nóg að hlakka til. Þarf að fara að vinna, 'oska bara öllum Farsældar á nýju ári. OG ALLIR AÐ MÆTA 'A 'ARAM'OTABALL 'A TANGANUM

» 2 hafa sagt sína skoðun

14.12.2007 20:57:26 / inga

Endurlífgun

Er ekki málið að endurlífga þessa síðu nenni ekki þessu minn sirkus dæmi :D

 Margt að ske og margt að frétta er flutt aftur á tangann en þeir sem að ekki vita flutti ég í bæinn í vor og festi kaup á íbúð í miðbænum. Þá komst ég að því að ég var Hitler í fyrra lífi :( Fyrst var ráðist á mig fyrir utan heima á laugardagskvöldi, tveir útlendingar þar á ferð en sem betur fer kom fólk mér nú til hjálpar. Svo var brotist inn og öllu verðmætu stolið svo sem 42" flatskjá, 2 stafrænum myndavélum ljósmyndaprentara og öðru. Síðan var róni búin að koma sér fyrir í sameiginlega þvottahúsinu, ekki eru samt óhöppin búin. 'Eg tek þá ákvörðun að flytja heim enda komin með nóg af reykjavíkurdraslinu, fæ að geyma búslóðina í bílskúrnum hjá múttu og far en nei springa þá ekki einhverjar lagnir eða eitthvað og allt helvítis draslið soðnar í einhverju vatnsbaði og er ónýtt. Hana nú allt farið 8| en ojæja þíðir ekkert að væla yfir því lífið heldur áfram og best að smæla bara :haha:


» 3 hafa sagt sína skoðun